Þjóðverji datt í lukkupottinn

Þjóðverji er rúmlega 1,4 milljörðum króna ríkari í dag en …
Þjóðverji er rúmlega 1,4 milljörðum króna ríkari í dag en í gær. AFP

Stálheppinn miðaeigandi í Þýskalandi var einn með allar aðaltölurnar og báðar stjörnutölurnar réttar og hlýtur hann rúmlega 1,4 milljarða í vinning í Eurojackpot-útdrætti kvöldsins. Þrír miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hljóta þeir rúmlega 82 milljónir króna í vinning hver. 

Vinningsmiðarnir voru keyptir í Tékklandi og tveir þeirra á Spáni. Tveir skiptu með sér 3. vinningi og hlýtur hvor um sig rúmlega 43 milljónir. 

Íslendingar voru heppnir í Jóker-útdrættinum og voru þrír með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hver. Tveir vinningshafar keyptu miða sína í lotto-appinu og þriðji miðinn var keyptur í Jolla, Helluhrauni 1 í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert