Mikið magn af kannabis fannst við húsleit

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum fann mikið magn af kannabisefnum í húsleit sem gerð var að fenginni heimild í íbúðarhúsnæði í vikunni.

Um var að ræða efni í 107 svokölluðum smelluláspokum. Einnig voru efni í fleiri ílátum í húsnæðinu. Húsráðandi, karlmaður á sextugsaldri, var handtekinn vegna málsins, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.

Hann játaði eign sína á hluta efnanna en kvaðst vera að geyma hluta fyrir annan. Hann er einnig grunaður um dreifingu og sölu fíkniefna.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri  upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á facebooksíðu lögreglunnar á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert