Fimm fyrirtæki vilja byggja nýjan Landspítala

Svona mun hluti nýja spítalans líta út.
Svona mun hluti nýja spítalans líta út. Ljósmynd/Aðsend

Fimm fyrirtæki vilja byggja nýjan Landspítala við Hringbraut en opnaðar hafa verið umsóknir hjá Ríkiskaupum í forvali vegna uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut sem er stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu, eða um 70.000 m².

Í tilkynningu kemur fram að þátttökubeiðnir hafi borist frá Eykt, Íslenskum aðalverktökum, Ístaki, Rizzani De Eccher Island og ÞG verktökum.

Þar segir enn fremur að eftir yfirferð forvalsgagna verða niðurstöður kynntar 6. janúar.

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar, segir í tilkynningunni.

Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert