Rangt að Jóhannes hafi handvalið tölvupósta

Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks.
Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks segir rangt að Jóhannes Stefánsson hafi ekki afhent WikiLeaks nema hluta af tölvupóstum sínum úr vinnutölvu sem hann hafði, en svo segir í opnu bréfi sem Kristinn ritar Björgólfi Jóhannssyni starfandi forstjóra Samherja á Facebook í dag.

Þar vísar Kristinn til tilkynningar sem birtist á vef Samherja 4. desember síðastliðinn, en þar sagði að Jóhannes hefði handvalið tölvupósta sem hann hefði afhent WikiLeaks og að það vekti upp spurningar.

„Þetta er rangt. WikiLeaks hefur fleiri pósta en þá sem þegar eru birtir en megináhersla var lögð á að birta strax þau gögn sem lágu til grundvallar greiningarvinnu þeirra blaðamanna, íslenskra og erlendra, sem unnið hafa fréttir á grunni gagnanna mánuðum saman,“ segir Kristinn í bréfi sínu og segir einnig að hann hafi tekið ákvörðun um að láta sigta út úr tölvupóstum og gögnum það sem hann taldi óþarfi að birta, meðal annars upplýsingar um persónuleg mál núverandi og fyrrverandi starfsmanna Samherja.

„Hugmyndin að þessu var tillitssemi við almenna starfsmenn fyrirtækisins sem ég er viss um að eru upp til hópa sómafólk,“ skrifar Kristinn. Hann segir að einnig séu óbirt gögn um „rekstrarþætti sem teljast ekki óeðlilegir“, viðskipti við birgja, söluaðila og annað.

Kristinn segir erfitt að lesa yfirlýsingu Björgólfs sem annað en „hvatningu til WikiLeaks“ um að birta öll þau gögn sem óbirt eru. „Það er raunar ekkert því til fyrirstöðu en þó vildi ég fyrst ganga úr skugga um að þú hefðir afdráttarlausan stuðning og heimild núverandi og fyrrverandi starfsmanna svo og viðskiptamanna Samherja til að leggja fram slíka hvatningu eða beiðni,“ skrifar Kristinn og biður Björgólf um að láta sig vita „afdráttarlaust“ hvort sú sé raunin.

Býður Samherja að koma gögnum til WikiLeaks

Kristinn segir að Samherji hafi gert það tortryggilegt að tímabil hafi vantað í tölvupósta Jóhannesar og segir alveg mögulegt að einhverjir póstar hafi ekki hlaðist niður við uppfærslu af móðurtölvu Samherja á sínum tíma. Úr þessu megi bæta, með því að Samherji láti WikiLeaks hafa alla þá pósta sem stafa til og frá vinnunetfangi Jóhannesar.

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja. mbl.is/​Hari

„Með því má bera saman gögnin og bæta svo þeim gögnum inn sem kunna að vanta í gagnagrunn Fishrot Files (Samherjaskjölin) þar sem þau verða þá greinanleg í leitarvél. Þetta er þjónusta sem sjálfsagt er að veita fyrirtækinu og almenningi öllum, en vitaskuld með sömu formerkjum og að ofan greinir. Hægt er að koma þessum gögnum til mín á USB lykli eða hreinlega með því að hlaða þeim niður á wikileaks.org/#submit,“ skrifar Kristinn, sem endar bréfið á að hnýta í Samherja með því að segja að eflaust sé „þekking innan fyrirtækisins“ til þess að koma gögnunum til þeirra með þessum hætti, þar sem það sé ekki flóknara en að hlaða myndbandsupptöku inn á YouTube.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert