14 sinnum upp og niður Esjuna

Strekkingsvindur var við Esjurætur en John Snorri lét það lítið …
Strekkingsvindur var við Esjurætur en John Snorri lét það lítið á sig fá. mbl.is/Eggert Jóhannesson

John Snorri Sigurjónsson fjallamaður hóf í gærkvöldi 28 klukkustunda langa æfingu á Esjunni.

Hann hélt í sína fyrstu ferð upp fjallið klukkan 18 og ætlar sér að ganga alls fjórtán ferðir viðstöðulaust upp og niður Esjuna þar til æfingu lýkur klukkan 22 í kvöld.

Þetta er opin æfing og er öllum frjálst að slást í för með fjallagarpinum, sem býr sig nú undir að fara til Pakistans í janúar næstkomandi og reyna þar að verða fyrsti maðurinn til þess að klífa tind K2 að vetrarlagi.

Loka­hnykk­ur­inn í und­ir­bún­ingi fjallagarps­ins Johns Snorra Sig­ur­jóns­son­ar fyr­ir ferð sína …
Loka­hnykk­ur­inn í und­ir­bún­ingi fjallagarps­ins Johns Snorra Sig­ur­jóns­son­ar fyr­ir ferð sína á K2, næst­hæsta fjall ver­ald­ar, hófst á Esjunni í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
John Snorri ætlar að ganga nær viðstöðulaust upp og niður …
John Snorri ætlar að ganga nær viðstöðulaust upp og niður Esjuna til klukk­an 22 í kvöld, eða í samtals 28 klukku­stund­ir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fjölskyldan styður John Snorra.
Fjölskyldan styður John Snorra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert