Vekur athygli á broti Þórhildar

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Friðriksson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sent forseta Evrópuráðsþingsins erindi þar sem vakin er athygli á því að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, hafi gerst brotleg við siðareglur fyrir alþingismenn, fyrst þingmanna.

Bréfið var sent 9. desember sl. og stílað á Liliane Maury Pasquier, forseta þingsins. „Mér finnst mikilvægt að gera viðvart um þessi brot þingmannsins. Þórhildur Sunna rækti ekki störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika samkvæmt áliti forsætisnefndar og siðanefndar,“ segir Ásmundur í samtali í Morgunblaðinu í dag.

Og bætir við að Evrópuráðsþingið ætti nú að íhuga aðgerðir gagnvart þingmanninum í ljósi þessa, en Þórhildur Sunna er varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og formaður laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins.

 „Evrópuráðsþingið hefur ítrekað lagt mikla áherslu á það við aðildarríki sín að þau setji siðareglur fyrir alþingismenn sem feli jafnframt í sér viðurlög. Þá hefur Evrópuráðsþingið sjálft sett sér siðareglur þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum, til dæmis skerðingu réttinda innan þingsins,“ segir Ásmundur.

Þá bendir hann einnig á að Evrópuráðsþingið hafi áður látið sig varða skipan Íslandsdeildar. Í samræmi við það ætti þingið nú einnig að láta sig það varða þegar Íslandsdeildin skipar þingmann sem gerst hefur brotlegur við siðareglur alþingismanna.

Skaðaði ímynd Alþingis

Umrædd ummæli Þórhildar Sunnu féllu í viðtali í Silfrinu25. febrúar 2018. Komst hún svo að orði að uppi væri „rökstuddur grunur“ um að Ásmundur Friðriksson hefði „dregið sér fé, almannafé“ þegar rætt var um akstursgreiðslur til Ásmundar. Að mati siðanefndar voru ummæli Þórhildar Sunnu til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess. Á þetta mat nefndarinnar er meðal annars bent í bréfinu til Evrópuráðsþingsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert