Biðtíminn of langur

Skurðagerð. Fjölgað hefur á biðlistum.
Skurðagerð. Fjölgað hefur á biðlistum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Yfir 90% þeirra sem voru á biðlista eftir brennsluaðgerð á hjarta í byrjun október höfðu beðið lengur en þrjá mánuði eftir aðgerð og miðgildi biðtíma á tímabilinu var 42 vikur.

Viðmiðunarmörk embættis landlæknis um ásættanlegan biðtíma eftir aðgerð eru 90 dagar og er miðað við að 80% komist í aðgerð innan þess tíma.

Því er ljóst að bið eftir þessari tegund aðgerða, sem og fleiri aðgerða, er langt umfram viðmiðunarmörk um ásættanlegan biðtíma.

Þetta kemur fram í greinargerð embættis landlæknis um stöðu á biðlistum eftir völdum skurðaðgerðum, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert