Smíðaði jólatré úr járni

Járnjólatré Alexanders er einstakt og veldur ekki ofnæmi.
Járnjólatré Alexanders er einstakt og veldur ekki ofnæmi. mbl.is/Árni Sæberg

Alexander Bridde, sem rekur járnsmíðaverkstæðið Prófílstál, smíðaði á dögunum einstakt 180 sentímetra hátt jólatré úr járni fyrir eiginkonu sína, Ingibjörgu, sem þjáist af hvimleiðu ofnæmi fyrir greni.

Alexander segir Ingibjörgu hafa verið fljóta að samþykkja nýja tréð þrátt fyrir að þetta væri í fyrsta skipti í 37 ár sem fjölskyldan væri ekki með lifandi jólatré.

Tréð er 180 sm hátt.
Tréð er 180 sm hátt. mbl.is/Árni Sæberg

Jólatréð prýðir nú heimili þeirra hjóna, hangandi úr loftinu, barnabörnunum til mikillar gleði. Sonur Alexanders, Guðni Bridde, sem einnig er járnsmiður á verkstæði föður síns, smíðaði stjörnuna sem trónir á toppi járntrésins.

Sonur Alexanders, Guðni Bridde, smíðaði stjörnuna.
Sonur Alexanders, Guðni Bridde, smíðaði stjörnuna. mbl.is/Árni Sæberg

Alexander er enginn nýgræðingur í hönnun og smíði skrautmuna en í samtali við Morgunblaðið segist hann smíða flestar gjafir sem hann gefur sjálfur úr járni.

Samanbrotið tekur tréð ekki mikið pláss.
Samanbrotið tekur tréð ekki mikið pláss. mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert