Heitavatnslaust í Vesturbænum

Frá viðgerð á Bústaðavegi.
Frá viðgerð á Bústaðavegi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bilun í einni af aðalæðum hitaveitunnar í Reykjavík er alvarlegri en svo að hægt sé að bíða með viðgerð fram á kvöld. Þess vegna er að verða heitavatnslaust í Vesturbæ Reykjavíkur þessa stundina.

Reikna má með heitavatnsleysi fram á kvöld og jafnvel fram á nóttina, að því er segir í tilkynningu frá Veitum.

Hér má sjá á hvaða svæði er heitavatnslaust.
Hér má sjá á hvaða svæði er heitavatnslaust. Ljósmynd/Veitur

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Nú um há­degið upp­götvaðist bil­un í einni af aðalæðum hita­veitu Veitna í Reykja­vík. Bilunin er rétt við Bústaðaveg í grennd við Valsheimilið og eru vegfarendur þar beðnir að sýna aðgát.

Starfsfólk Veitna brást þegar við og reyndi að draga úr lekanum með það fyrir augum að gera við lögnina í nótt. Bilunin er hinsvegar alvarlegri og lekinn úr lögninni meiri en að það sé hægt.

Æðin sem bilaði er ein af aðalæðum hitaveitunnar, 50 sentímetrar í þvermál, en ástæða þess að vatnsleysi verður svo víðtækt við viðgerðina er að slökkva þarf á dælustöð hitaveitunnar í Öskjuhlíð meðan á viðgerð stendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert