Átta nemendur FÁ útskrifuðust af tveimur brautum

Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði í dag 106 nemendur.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði í dag 106 nemendur. Ljósmynd/Aðsend

Alls útskrifuðust 106 nemendur úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla, þar af útskrifuðust 8 nemendur af tveimur brautum fyrir jólin. 13 nemendur útskrifuðust af heilbrigðissviði, sem skiptust svo eftir námsbrautum; sjö útskrifuðust sem heilsunuddarar, einn sem læknaritari, einn sem lyfjatæknir og fjórir sem sjúkraliðar.

Frá nýsköpunar- og listabraut útskrifuðust sex nemendur og stúdentar voru 86. 43 útskrifuðust af félagsfræðibraut, af náttúrufræðibraut útskrifuðust 13, af hugvísinda- og málabraut sex, af viðskipta- og hagfræðibraut útskrifuðust sex og með viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi 19. Dúx skólans er Stefaniya Ogusova, sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunina 8,71.

Í ræðu sinni fjallaði Magnús Ingvason, skólameistari FÁ, m.a. um nýlega PISA-könnun og nefndi að enn og aftur væru íslensk ungmenni töluð niður í fjölmiðlum og netheimum. Árangurinn mætti vissulega bæta og ýmis úrræði af hálfu menntamálayfirvalda hefðu verið kynnt. Vonandi myndu þau úrræði efla íslensk ungmenni, en árangurinn kæmi eflaust ekki í ljós fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Að lokum hvatti skólameistari nemendur til að lifa lífi sem veitti þeim vellíðan og gleði, en ekki lífi sem bara liti vel út. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert