Kristján Gunnar laus úr einangrun

Frá heimili Kristjáns Gunnars við Aragötu í Reykjavík.
Frá heimili Kristjáns Gunnars við Aragötu í Reykjavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Gunnar Valdimarsson hefur verið látinn laus úr einangrun, en hann sætir gæsluvarðhaldi á grundvelli almanna- og rannsóknarhagsmuna vegna gruns um að hann hafi svipt þrjár konur frelsi og beitt þær kynferðislegu ofbeldi.

Frá þessu er greint á RÚV, en þar er rætt við réttargæslumann einnar kvennanna, Leif Runólfsson, sem gagnrýnir að hann hafi ekki látinn vita þegar Kristján Gunnar losnaði úr einangrun í gær.

Kristján Gunn­ar var hand­tek­inn aðfaranótt aðfanga­dags vegna gruns um að hann hafi haldið ungri konu nauðugri á heim­ili sínu í 10 daga og brotið gegn henni kyn­ferðis­lega, en hann var lát­inn laus að skýrslu­töku lok­inni. Hann var svo handtekinn aftur að morgni jóladags, þá grunaður um að hafa haldið tveimur konum nauðugum þá um nóttina og brotið gegn þeim kynferðislega.

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Kristjáni Gunnari er í gildi til sunnudagsins 29. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert