Vilhjálmur Einarsson látinn

Vilhjálmur Einarsson er látinn.
Vilhjálmur Einarsson er látinn.

Vilhjálmur Einarsson lést á Landspítalanum í gær, laugardaginn 28. desember, 85 ára að aldri.

Vilhjálmur fæddist á Hafranesi við Reyðarfjörð 5. júní 1934. Hann var sonur hjónanna Einars Stefánssonar frá Mýrum í Skriðdal, fulltrúa á Egilsstöðum, og Sigríðar Vilhjálmsdóttur frá Hánefsstöðum í Seyðisfirði. Vilhjálmur gekk í barnaskólann á Reyðarfirði, farskólann á Völlum, Gagnfræðaskólann á Seyðisfirði og Alþýðuskólann á Eiðum. Að loknu landsprófi frá Eiðum innritaðist Vilhjálmur í Menntaskólann á Akureyri árið 1951 og útskrifaðist sem stúdent frá stærðfræðideild vorið 1954. Haustið 1954 hlaut Vilhjálmur skólastyrk við Dartmouth-háskólann í Bandaríkjunum og útskrifaðist þaðan með BA-próf með áherslu á listasögu. Þá sótti Vilhjálmur framhaldsnám í uppeldis- og kennslufræði við Gautaborgarháskóla 1974-1975 og 1990-1993.

Atli Steinarsson (til vinstri), fyrsti formaður Samtaka íþróttafréttamanna, og Vilhjálmur …
Atli Steinarsson (til vinstri), fyrsti formaður Samtaka íþróttafréttamanna, og Vilhjálmur Einarsson, sem fyrstur var kjörinn, með verðlaunagripinn sem hann tók við fimm sinnum. mbl.is/Brynjar Gauti

Vilhjálmur lagði mikið af mörkum til íslenskra fræðslu- og æskulýðsmála. Hann var kennari við Héraðsskólann á Laugarvatni, 1957-1958; skólastjóri við Héraðsskólann á Laugarvatni, 1959 vorönn; kennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar, 1959-1960, og kennari við Samvinnuskólann á Bifröst, 1959-1965. Þá var Vilhjálmur skólastjóri Héraðsskólans í Reykholti á árunum 1965-1979 á miklu blómaskeiði skólans. Loks gegndi Vilhjálmur starfi skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum frá upphafi skólans 1979 til ársins 2001 og vann þar mikið brautryðjandastarf. Frá 2001 var Vilhjálmur um árabil stundakennari við Menntaskólann á Egilsstöðum og árið 2001 stofnaði hann Námshringjaskólann, sem var í námskeiðaformi. Meðal annarra starfa má nefna að hann stofnaði og rak Íþróttaskóla Höskuldar og Vilhjálms ásamt Höskuldi Goða Karlssyni íþróttakennara 1960-1972. Var skólinn starfræktur í Mosfellsdal, Varmalandi og Reykholti í Borgarfirði. Vilhjálmur stofnaði bókaforlagið Að austan, sem gaf út tvær bækur: Magisterinn og Silfurmaðurinn. Hann var formaður Ungmennasambands Borgarfjarðar 1967-1970 en þá var m.a. Sumarhátíðin í Húsafelli sett á laggirnar.

Vilhjálmur Einarsson með foreldrum sínum, Sigríði Vilhjálmsdóttur og Einari Stefánssyni, …
Vilhjálmur Einarsson með foreldrum sínum, Sigríði Vilhjálmsdóttur og Einari Stefánssyni, við heimkomuna frá Melbourne þar sem hann vann til silfurverðlauna. mbl.is/Ólafur K. Magnússon

Vilhjálmur er meðal fræknustu íþróttamanna Íslendinga fyrr og síðar. Meðal annars vann hann til silfurverðlauna fyrstur Íslendinga á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956 og var 5 sinnum kjörinn íþróttamaður ársins. Vilhjálmur er handhafi Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag í þágu íþrótta- og uppeldismála.

Vilhjálmur lætur eftir sig eiginkonu, Gerði Unndórsdóttur, og synina Rúnar, Einar, Unnar, Garðar, Hjálmar og Sigmar, auk 19 barnabarna og 14 barnabarnabarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert