Rannsókn meints hatursglæps á frumstigi

Rannsókn lögreglu er á frumstigi.
Rannsókn lögreglu er á frumstigi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar líkamsárás sem erlendur karlmaður á þrítugsaldri varð fyrir aðfaranótt laugardagsins 28. desember. Árásin var að því er virðist tilefnislaus og er rannsökuð sem mögulegur hatursglæpur.

„Rannsókn er á frumstigi og dagurinn fer í að hafa uppi á myndefni,“ segir lögreglufulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.

Talið er að einhvers konar málmáhald hafi verið notað við árásina. Brotaþoli hlaut áverka í andliti og var nokkuð vankaður eftir. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert