Stöðugleiki er í kortunum

Þrátt fyrir samdrátt í ferðaþjónustu hefur gengi krónunnar verið stöðugt.
Þrátt fyrir samdrátt í ferðaþjónustu hefur gengi krónunnar verið stöðugt. mbl.is/Ómar Óskarsson

Árið 2019 var annað árið í röð með hverfandi inngripum Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði. Námu þau aðeins broti af viðskiptunum 2015-17. Seðlabankinn getur brugðist við gengisbreytingum með því að kaupa eða selja erlendan gjaldeyri.

Gengi krónu hefur haldist mjög stöðugt síðan í byrjun nóvember 2018. Gengið gaf eftir haustið 2018 en óvissa var þá í ferðaþjónustu.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir gjaldeyrismarkaðinn hafa verið í góðu jafnvægi síðustu tvö ár. Það bendi aftur til að gengi krónu sé í jafnvægi. Hún sé hvorki sterk né veik heldur hæfileg. Útlit sé fyrir að gengið verði stöðugt á næstunni.

Þá bendir Ásgeir á að töluverð aðlögun hafi orðið í íslenska hagkerfinu í kjölfar samdráttar í ferðaþjónustu. Á móti minni útflutningi þjónustu komi mun minni innflutningur. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að þrátt fyrir samdrátt í ferðaþjónustu sé ekki útlit fyrir veikingu krónu næsta kastið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert