Andlát: Harpa Ásgrímsdóttir Árdal, í Kanada

Harpa Ásgrímsdóttir Árdal er látin.
Harpa Ásgrímsdóttir Árdal er látin.

Látin er í Kanada Harpa Ásgrímsdóttir Árdal, 94 ára að aldri. Harpa var fædd 21. júní 1925 á Akureyri en hún lést 25. desember sl. í Toronto.

Foreldrar Hörpu voru María Guðmundsdóttir og Ásgrímur Pétursson. Harpa kvaddi í rósemd og návist fjölskyldunnar á jóladag.

Harpa var leirlistakona, meistari í bridge og mikil áhugakona um heilsurækt. Harpa var eftirlifandi eiginkona dr. Páls Árdal, prófessors emeritus við Queen University Kingston (d. 25. mars 2003). Harpa og Páll eignuðust fjögur börn, þau Hallfríði félagsráðgjafa, Maríu, leikstjóra og leikritahöfund, Steinþór, forstjóra hjá Upplýsingastofnun heilbrigðismála í Toronto, og Grím kvikmyndatökumann, tengdabörn, níu barnabörn og 10 barnabarnabörn.

Harpa bjó í Edinborg í 25 ár og síðar í Kingston, Ontario í Kanada í 45 ár. Harpa var þekkt fyrir leirmuni sína og hlaut viðurkenningar í þeirri listgrein. Hún spilaði tennis og iðkaði jóga langt fram á níræðisaldur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert