Fæddi í sjúkrabíl fyrir utan fæðingardeildina

Drengurinn kom í heiminn á bílastæði Landspítalans.
Drengurinn kom í heiminn á bílastæði Landspítalans. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sjúkraflutningamenn tóku á móti dreng í sjúkrabíl á lóð Landspítalans í Reykjavík um klukkan þrjú í dag. Í samtali við mbl.is segir slökkviliðsmaður að um klukkan hálfþrjú hafi slökkviliðinu borist tilkynning um konu sem væri komin með hríðir og stutt á milli þeirra.

„Við treystum henni þó til að fara inn í bíl og bárum hana því inn í sjúkrabílinn.“ Svo mikill asi var á drengnum að hann kom í heiminn á bílastæði fæðingardeildarinnar og tóku sjúkraflutningamenn á móti honum.

Að sögn slökkviliðsmannsins heilsast móður og barni vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert