Öll fyrirtækin hæf til að byggja nýjan Landspítala

Mikið magn steypu mun þurfa fyrir nýjan meðferðarkjarna.
Mikið magn steypu mun þurfa fyrir nýjan meðferðarkjarna. Ljósmynd/Aðsend

Þau fimm fyrirtæki sem skiluðu inn þátttökubeiðni vegna uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut hafa öll verið metin hæf til að taka þátt í útboði vegna uppsteypunnar. Kröfur voru gerðar um fjárhagslegt og tæknilegt hæfi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá NLHS ohf.

Meðferðarkjarninn mun verða þungamiðjan í starfsemi Landspítalans.
Meðferðarkjarninn mun verða þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Ljósmynd/Aðsend

Engin takmörkun var á fjölda bjóðenda í forvalinu en þau fyrirtæki sem skiluðu  þátttökubeiðni og voru metin hæf eftir yfirferð forvalsgagna hjá Ríkiskaupum eru: Eykt ehf., Íslenskir aðalverktakar hf., Ístak hf., ÞG verktakar ehf. og fyrirtækjahópurinn Rizzani De Eccher Island S.P.A, Rizzani De Eccher Ísland ehf. og Þingvangur ehf.

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni kemur þungamiðja starfsemi Landspítalans til með að vera. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.

Horft yfir Hringbraut.
Horft yfir Hringbraut. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert