„Það er neyðarástand á bráðamóttöku Landspítala“

Vaktstjórarnir eru ómyrkir í máli, og vara við að stórslys …
Vaktstjórarnir eru ómyrkir í máli, og vara við að stórslys kunni að vera í aðsigi á deildinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vaktstjórar hjúkrunar bráðadeildar G2 Landspítala, sjá sig knúna til að lýsa yfir alvarlegum áhyggjum sínum á ástandi deildarinnar. Þeir segja að ríki neyðarástand á deildinni og það muni enda með ósköpum verði ekki brugðist við með róttækum aðgerðum nú þegar. 

„Við tökum að öllu leyti undir orð Más Kristjánssonar sem varar við að stórslys kunni að vera í aðsigi á deildinni í Læknablaðinu í janúar 2020. Við staðfestum orð Más sem í grein sinni lýsir aðstöðuleysi, þrengslum og óviðunandi ástandi sem heldur bara áfram að versna.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá starfsfólki deildarinnar. 

Þar segir enn fremur, að mikill innlagnarþungi og spurn eftir þjónustu ásamt auknum fráflæðisvanda geri deildinni ekki kleift að stýra bráðamóttökunni sem skyldi.

Sjúklingar liggja berskjaldaðir á göngum deildarinnar

„Deildin, sem hönnuð er til að sinna mest 35 sjúklingum með bráðan vanda, hýsir nú alla daga 20-40 sjúklinga til viðbótar sem lokið hafa meðferð á bráðamóttöku en hafa ekki fengið pláss á viðeigandi legudeildum sjúkrahússins. Sjúklingar liggja því berskjaldaðir á göngum deildarinnar. Við reynum eftir fremsta megni að þjónusta þennan sjúklingahóp en öllum má vera það ljóst að þeir fá ekki jafn góða þjónustu á bráðamóttökunni eins og þeir myndu fá á viðeigandi legudeild. Ekki er mögulegt að tryggja fagmennsku, friðhelgi, öryggi og sýkingarvarnir við þessar aðstæður,“ segir í yfirlýsingunni. 

Mun enda með ósköpum verði ekki brugðist við með róttækum aðgerðum

„Sem vaktstjórar hjúkrunar berum við ábyrgð á flæði sjúklinga um deildina, móttöku þeirra og hjúkrun og er staðan nú orðin sú að erfitt eða ómögulegt er að taka á móti nýjum sjúklingum og bíða þeir ýmist á sjúkrabörum sjúkraflutningamanna eða á biðstofu eftir þjónustu. Við vísum fullyrðingum um að ekki ríki neyðarástand á deildinni alfarið á bug. Það er neyðarástand á Bráðamóttöku Landspítala og mun það enda með ósköpum ef ekki er brugðist við með róttækum aðgerðum nú þegar.

Heilbrigðisráðherra sagði í viðtali við RÚV 6. janúar s.l. að þetta sé langtímamál: „Það er ekkert til sem heitir einföld lausn eða skyndilausn í svona flóknu máli“. Starfsfólk Bráðadeildar G2 hefur á undanförnum árum margoft ítrekað áhyggjur sínar af vanda deildarinnar en talað fyrir daufum eyrum. Stjórnendur Bráðamóttökunnar hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að létta undir álagi á deildinni en yfirstjórn sjúkrahússins virðist úrræðalaus. Vandi Landspítala er ekki einungis okkar heldur þjóðfélagsins í heild. Hvenær verður vandi sjúkrahússins leystur?

Við hörmum að vera sett í þá stöðu að bera ábyrgð á starfsemi deildarinnar undir þessum kringumstæðum. Við skorum því á [h]eilbrigðisráðherra, Velferðarnefnd Alþingis og [s]tjórn Landspítala að finna lausn á þessum vanda tafarlaust,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert