Hættuástand daglegur veruleiki

mbl.is/​Hari

Félag almennra lækna og Félag sjúkrahúslækna lýsa yfir þungum áhyggjum af viðvarandi óviðunandi og stöðugt versnandi ástandi á Landspítala. Segja þau hættuástand fyrir löngu vera daglegan veruleika á deildum spítalans. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi félaganna í gær.

Í ályktuninni segir einnig að fjöldi bráðveikra einstaklinga sé jafnvel dögum saman í óviðunandi aðstæðum á stofu með fjölda annarra og á göngum spítalans. Þá segir að ástandið sé fullkomlega óboðlegt frá öllum hliðum séð og hafi neikvæð áhrif á líðan og öryggi sjúklinga og spilli möguleikum á eðlilegri faglegri þjónustu.

Þá segir í ályktuninni að ástandið geri starfsfólki ókleift að sinna mikilvægasta hlutverki spítalans, sem sé kennsla og vísindastarf. Skora félögin á stjórnvöld, yfirstjórn sjúkrahússins og embætti landlæknis að axla ábyrgð á ástandinu og finna viðunandi lausn til skemmri og lengri tíma.

Í gær lýstu bæði stjórn læknaráðs Landspítala og vaktstjórar hjúkr­un­ar bráðadeild­ar G2 á Land­spít­ala áhyggjum af ástandi á bráðadeild sjúkrahússins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert