Raforka verður ólíklega skert

Unnið við stíflumannvirki hjá Syðri- Hágöngu en þau miðla vatni …
Unnið við stíflumannvirki hjá Syðri- Hágöngu en þau miðla vatni til Þórisvatns. mbl.is/RAX

Þrátt fyrir litla úrkomu og kuldatíð á hálendinu í vetur stendur orkukerfi Landsvirkjunar vel og er ekki útlit fyrir takmarkanir á raforkuafhendingu á yfirstandandi vetri. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar.

Miklu skiptir fyrir fyrirtækið að vatnsbúskapur á hálendinu sé góður. Skemmst er að minnast ársins 2014, þegar vatnsbúskapur var með verra móti og skammta þurfti orku. Tekjutap Landsvirkjunar vegna skerðinga á raforku hljóp á hundruðum milljóna króna af þeim sökum.

Innrennsli í miðlunarlón Landsvirkjunar hefur verið í minna lagi í haust og engir vetrarblotar náð inn á hálendið það sem af er vetri. Öll miðlunarlón voru full fram yfir miðjan október en niðurdráttur verið síðan þá.

Heildarstaða miðlana um áramót er ekki jafn góð og í fyrra, en svipuð og árið 2017. Lítið innrennsli hefur verið á Þjórsársvæði og er staða Þórisvatns því ekki jafn góð og síðustu ár, en takmarkanir í flutningskerfi Landsnets torvelda Landsvirkjun að jafna stöðu miðlunarlóna milli landshluta, segir Landsvirkjun. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert