Aðsóknarmet í Hörpu á síðasta ári

Harpan nýtist vel til tónleikahalds.
Harpan nýtist vel til tónleikahalds. mbl/Arnþór Birkisson

Síðasta ár var metár í Hörpu hvað aðsókn varðar. Voru 2.155 viðburðir af öllum stærðum og gerðum haldnir í húsinu. Þar af voru 449 tónleikar. Alls voru 191.319 miðar prentaðir út í miðasölunni.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hörpu. Fram kemur ennfremur að í fyrra voru haldnir í húsinu 411 fundir, ráðstefnur, veislur og móttökur. Þar af voru 28 alþjóðlegar ráðstefnur.

Aldrei áður hafa svo margar alþjóðlegar ráðstefnur verið haldnar þar. Komnar eru margar bókanir fyrir þetta ár og næsta. Skoðunarferðir undir leiðsögn voru 981 talsins. Flestar voru á ensku fyrir ferðamenn en einnig var efnt til sérleiðsagnar fyrir íslenska hópa og fyrir börn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert