Álagningarseðlar fasteignagjalda ekki sendir í pósti

Á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is, undir „mínar síður“, munu fasteignaeigendur geta …
Á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is, undir „mínar síður“, munu fasteignaeigendur geta skoðað álagningarseðil fasteignagjalda eftir 27. janúar 2020 og alla breytingarseðla þar á eftir. mbl.is/Árni Sæberg

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2020 verða aðeins birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavík á árinu 2020.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar segir, að álagningar- og breytingarseðlarnir verði ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.

„Á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is, undir „mínar síður“ munu fasteignaeigendur geta skoðað álagningarseðil fasteignagjalda eftir 27. janúar 2020 og alla breytingarseðla þar á eftir. Þar geta þeir einnig skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda og gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur, óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir til greiðenda, 18-77 ára. Einnig er hægt að senda þar inn erindi vegna fasteignagjalda,“ segir í tilkynningunni. 

Tekið er fram, að fasteignagjöld ársins 2020, yfir 25.000 kr., greiðist með níu jöfnum greiðslum á gjalddögum 1. febrúar, 2. mars, 4. apríl, 3. maí, 1. júní, 5. júlí, 2. ágúst, 1. september og 3. október.

Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 1. febrúar. Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum og boðgreiðslur af greiðslukortum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert