Fá næturskjól á Blönduósi

Mikil hálka og erfiðar aðstæður voru á slysstað.
Mikil hálka og erfiðar aðstæður voru á slysstað. mbl.is/Jón Sigurðsson

Þau sem sluppu óslösuð eða með minni háttar áverka frá rútuslysinu sem varð skammt frá Blönduósi síðdegis í dag fá næturskjól á Blönduósi í nótt.

Þetta staðfestir Hjálmar Björgvinsson, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, í samtali við mbl.is. Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð og aðgerðastjórn á Sauðárkróki hefur verið lokað.

Rúta með 49 háskólanemum og bílstjóra innanborðs valt skammt frá bænum Öxl sunnan við Blönduós og hafnaði á hvolfi síðdegis í dag. Þrír voru fluttir með þyrlu á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en aðrir sluppu ýmist ómeiddir eða með vægari áverka á borð við beinbrot og skrámur.

Hlúð var að þeim minna slösuðu á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert