98 útköll á dag í desember

Eldsvoði við Hafnarfjarðarhöfn.
Eldsvoði við Hafnarfjarðarhöfn. mbl.is/Hari

Á síðasta ári fóru starfsmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins samtals í 33.436 útköll, miðað við 33.059 á árinu 2018, sem er fjölgun um 377 útköll á milli ára (1,1%). Þegar árið 2019 er skoðað í heild kemur í ljós að útköllin voru langflest í desember síðastliðnum, eða 3.059 talsins, en þá voru að meðaltali 98 útköll á sólarhring. Útköllin voru hins vegar fæst í apríl, eða 2.571 talsins, sem eru u.þ.b. 86 útköll á sólarhring.

Útköllum liðsins hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár og ef horft er aftur til ársins 2015 hefur aukningin verið 12,5%, eða um tæplega 4.000 útköll. Gildir það þó aðallega um útköll vegna sjúkraflutninga því útköll vegna slökkvistarfa hafa staðið í stað, og þeim jafnvel fækkað. En þrátt fyrir fækkun þeirra útkalla hefur umfang verkefna vegna erfiðra slökkvistarfa frekar aukist ef eitthvað er.

Umfang verkefna vegna erfiðra slökkvistarfa hefur frekar aukist ef eitthvað …
Umfang verkefna vegna erfiðra slökkvistarfa hefur frekar aukist ef eitthvað er. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Þegar álagssveiflur eru skoðaðar er oft horft til fjölda útkalla á sólarhring og þó að meðaltalið hafi verið 98 útköll á sólarhring í desember sl. eru þau oft mun fleiri. Ef við horfum t.d. bara til þess hversu oft útköllin voru 100 eða fleiri á sólarhring í fyrra gerðist það 130 sinnum, samanborið við 110 tilvik á árinu 2018, sem er 18,2% aukning. Ef árið 2015 er skoðað út frá sömu forsendum voru sólarhringarnir 36 þar sem útköllin voru fleiri en 100, sem er þá næstum þreföldun fram til ársins 2019. Þessi aukning undirstrikar auknar álagssveiflur á milli ára, í takt við heildarfjölgun útkalla,“ segir á Facebook-síðu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert