Klakastífla lokar ós Höskuldslækjar

Klakastíflur geta valdið miklum vandræðum eins og sjá má á …
Klakastíflur geta valdið miklum vandræðum eins og sjá má á þessari mynd af klakastíflu í Hvítá og Stóru-Laxá. mbl.is/RAX

Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningu um að klakastífla væri í farvegi Hvítár fram af landi Vaðness í gærkvöldi. 

Stíflan er sögð loka ós Höskuldslækjar og leggst vatn úr honum nú að sumarhúsabyggð á bökkum árinnar norðanmegin. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið af, að því er fram kemur í tilkynningu á vef lögreglunnar.

Sá sem tilkynnti um stífluna hafði fyrst orðið var við hana í fyrradag og í gær hafði heldur sjatnað í árfarveginum.  

Sveitarstjórar í Grímsnes- og Grafningshreppi, Flóahreppi og Árborg hafa verið upplýstir um málið og verður staðan skoðuð í dag þegar bjart er orðið.

Í febrúar 2018 kom klakastífla á sama stað og flæddi þá að umræddum sumarhúsum þannig að eitthvert vatnstjón hlaust af. Sú stífla ruddi sig skömmu síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert