Biðja fólk að virða lokanir

Kort Vegagerðin

Lögreglan á Vestfjörðum biður fólk um að virða lokanir á vegum en mjög torfært er um þéttbýlisstaði vegna snjóa og vegir enn lokaðir milli þéttbýliskjarna vegna ófærðar. Unnið er að hreinsun vega eins og veður og aðstæður leyfa.

Hnífsdalsvegi og Skutulsfjarðarbraut var lokað að kvöldi 14. janúar vegna snjóflóðahættu, og verða þeir opnaðir um leið og aðstæður bjóða, að höfðu samráði við Veðurstofu Íslands og Vegagerð. Þá er lokað fyrir umferð um gömlu byggðina í Súðavík vegna snjóflóðahættu, sem og veginn um Hafrafellsháls í Skutulsfirði. Þá er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni við hafnarsvæðið á Suðureyri vegna flóðbylgjuhættu.

Aðgerðastjórn á norðanverðum Vestfjörðum og samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð voru virkjaðar rétt fyrir miðnætti  vegna þriggja snjóflóða sem féllu á norðanverðum Vestfjörðum með stuttu millibili. Eitt flóðið féll í hlíðinni til móts við Suðureyri, Norðureyri, sem olli því að flóðbylgja skall á hafnarsvæðinu og fjörunni við Suðureyri. Voru nokkur hús rýmd í kjölfarið vegna frekari hættu. Engin slys urðu á fólki en eftir er að meta eignatjón.

Tvö flóð féllu á Flateyri, beggja vegna snjóflóðavarnagarðsins. Annað þeirra hafnaði á húsi efst og yst í þorpinu og grófst ung stúlka í flóðinu. Björgunarsveitarfólk á Flateyri bjargaði henni skömmu síðar. Aðrir íbúar hússins komust út af sjálfsdáðum. Hitt flóðið féll í sjó við smábátahöfn og varð eignatjón á skipum og mannvirkjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert