Er að átta sig á atburðum næturinnar

Varnargarðurinn beindi öðru snjóflóðinu í sjóinn, þar sem það olli …
Varnargarðurinn beindi öðru snjóflóðinu í sjóinn, þar sem það olli gríðarlegri eyðileggingu á höfninni. Ljósmynd/Steinunn G. Einarsdóttir

„Maður er svona að átta sig á atburðum næturinnar,“ segir Vigdís Erlingsdóttir, íbúi á Flateyri. Hún hlúði að móður unglingsstúlkunnar og tveimur yngri systkinum á meðan stúlkunnar var leitað eftir að tvö stór snjóflóð féllu á bæinn seint í gærkvöldi.

Vigdís segir að það sé auðvitað fyrir öllu að tekist hafi að bjarga stúlkunni, sem var grafin undir snjónum í 40 mínútur. 

Vigdís Erlingsdóttir.
Vigdís Erlingsdóttir. Ljósmynd/Facebook

Varðskipið Þór sigldi með fjölskylduna á Ísafjörð en stúlkan hlaut ekki alvarlega áverka.

„Það er erfitt að koma þessum tilfinningum í orð,“ segir Vigdís sem kveðst hafa verið meira og minna í símanum í morgun þar sem reynt er að komast yfir hvað gerðist. 

Tvö flóð féllu á Flateyri og eitt á Súgandafirði seint …
Tvö flóð féllu á Flateyri og eitt á Súgandafirði seint í gærkvöldi. Annað flóðanna sem féll við Flateyri fór á húsið við Ólafstún 14. Kort/mbl.is

Áfram er óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Vigdís segir að það verði einfaldlega að sjá til hvert framhaldið verður.

Aðstæður á Flateyri eru áfram slæmar en vegum er lokað og appelsínugul viðvörun í gildi á Vestjörðum.

„Það er alveg blint og sést ekki á milli húsa,“ segir Vigdís. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert