IKEA innkallar ferðabolla

Troligtvis-ferðabolli frá IKEA.
Troligtvis-ferðabolli frá IKEA. Mynd IKEA

IKEA hvetur viðskiptavini sem eiga Troligtvis-ferðabolla sem merktir eru „Made in India“ til að taka þá úr notkun. Nýlegar prófanir sýna að varan losar hugsanlega meira af efnasamböndum en sett viðmið segja til um. Því eru eigendur þessara tilteknu ferðabolla hvattir til að skila þeim í IKEA þar sem þeir verða að fullu endurgreiddir.

Nýlegar prófanir sýna að ferðabollarnir geta hugsanlega losað meira magn af díbútýlþalötum (DBP) en fyrrnefnd viðmið segja til um. IKEA hefur um árabil bannað notkun þalata í vörur sem ætlaðar eru fyrir matvæli og tók því ferðabollana strax úr sölu meðan á rannsóknum stóð. Þær hafa svo leitt í ljós að ekki allir ferðabollar merktir „Made in India“ standast þær kröfur sem gerðar eru, samkvæmt fréttatilkynningu.

Troligtvis-ferðabollarnir hafa verið seldir síðan í júlí 2019. IKEA hvetur alla þá sem eiga slíka ferðabolla sem merktir eru „Made in India“ til að skila þeim og fá að fullu endurgreidda. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert