Ríkisstjórnin þurfi að „sýna sitt rétta andlit“ á Alþingi

Frá Alþingi
Frá Alþingi mbl.is/Árni Sæberg

Heildstæð endurskoðun kosningalaga, úrbætur í heilbrigðiskerfinu, samgönguáætlun, fjármálaáætlun og fleira eru á meðal þeirra stóru verkefna sem Alþingi stendur frammi fyrir á komandi vikum og mánuðum.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fundaði með þingflokksformönnum í gær og segir að þingmenn virðist hafa komið vel undan jólum. Þinghald hefst að nýju næstkomandi mánudag.

Samgönguáætlun og heilbrigðiskerfið verða með stærstu málum þingsins, að mati Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. „Það verður mikil umræða um heilbrigðiskerfið okkar og þann vanbúnað sem það býr við,“ segir Logi.

Hann segir að flokkana greini á um það hvernig fjármagna eigi samgönguáætlun og á þessu þingi sé einnig mikilvægt að taka sjávarútvegsmálin og auðlindaákvæðið föstum tökum. „Nú fer að líða að kosningum og þá fara flokkarnir að sýna fyrir hvað þeir standa. Ríkisstjórnin mun ekki komast áfram upp með að tefla bara fram lægsta samnefnara, sem er afleiðing þess að það eru ólíkir flokkar í stjórn, og mun þurfa að sýna sitt rétta andlit.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert