Ók á konu í bílaþvottastöð

Sú sem ekið var á fann til eymsla og var …
Sú sem ekið var á fann til eymsla og var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is

Ökumaður, sem var að aka inn í bílaþvottastöð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrradag, ók á konu sem stóð þar á gólfinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að ökumaðurinn hafi ætlað að bremsa en það ekki tekist þar sem bremsurnar virkuðu ekki vegna vætu á gólfinu. Sú sem ekið var á fann til eymsla og var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Nokkrar skemmdir urðu á húsnæðinu við þetta óhapp. Meðal annars gekk veggur innan dyra til og hurð brotnaði. Lögregla boðaði Vinnueftirlit ríkisins á staðinn.

Bifreið skall á vegrið

Í vikunni skall svo bifreið á vegrið á Reykjanesbraut þegar ekið var fram úr henni og síðan sveigt fyrir hana. Hjólabúnaður bifreiðarinnar festist í vegriðinu og varð að draga hana af vettvangi.

Þá hefur lögregla haft afskipti af nokkrum ökumönnum á undanförnum dögum vegna gruns um fíkniefnaakstur. Þrír þeirra óku sviptir ökuréttindum og í fórum eins af þeim fundust lyfseðilsskyld lyf sem hann gat ekki sýnt fram á að væru stíluð á hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert