Ráðherrarnir komnir til Flateyrar

Ráðherrarnir um borð í þyrlunni.
Ráðherrarnir um borð í þyrlunni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eru á meðal þeirra sem eru komin á Flateyri eftir að hafa flogi þangað með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Fyrir vestan munu þau kynna sér aðstæður og ræða við íbúa í bænum eftir snjóflóðin sem féllu þar á þriðjudagskvöldið.   

Flug þyrlunnar á Vestfirði var það fjórða í röðinni og verður eitt af verkefnum hennar að flytja mannskap og búnað milli Ísafjarðar og Flateyrar, að því er segir í tilkynningu. 

Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Forsvarsmenn helstu viðbragðsaðila voru einnig um borð í þyrlunni ásamt framkvæmdastjóra Náttúruhamfaratrygginga og fulltrúa Rauða krossins sem mun aðstoða við skipulagningu vegna stuðnings við íbúa.

Ljósmynd/Landhelgisgæslan

TF-GRO, þyrla Gæslunnar, fór síðdegis í gær í sjúkraflug til Flateyrar og á Ísafjörð auk þess sem hún flutti björgunarsveitarfólk, sérfræðinga, búnað og vistir síðar um kvöldið. Í morgun fór áhöfnin á TF-GRO vestur með fulltrúa Umhverfisstofnunar og Veðurstofunnar.

Tveir ljósastaurar felldir

Til að gera þyrlunni betur kleift að lenda við bensínstöðina á Flateyri voru tveir ljósastaurar felldir í gær til að búa til ákjósanlegan lendingarstað fyrir þyrluna.

Þyrlan verður til taks fyrir vestan næstu klukkutímana en TF-GRO lenti á Flateyri klukkan 15.

Annar ljósastauranna sem var felldur sést hér í forgrunni.
Annar ljósastauranna sem var felldur sést hér í forgrunni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert