Starfshópur metur fjárveitingar til ofanflóðasjóðs

Verkefni starfhópsins verður að skoða forgangsröðun fjármuna til verkefna ofanflóðasjóðs.
Verkefni starfhópsins verður að skoða forgangsröðun fjármuna til verkefna ofanflóðasjóðs. mbl.is/Hallur Már

Starfshópur verður skipaður til að fara yfir framkvæmdaáætlun ofanflóðasjóðs og mun hópurinn leggja til heildstætt mat á framkvæmdir við ofanflóðavarnir með áherslu á tímabil næstu fjármálaáætlunar fyrir árin 2021-2025 sem kynnt verður í vor.

Ríkisstjórnin ákvað þetta á fundi sínum í dag og verður hópurinn skipaður fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, að því er segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu

Verkefni starfhópsins verður að skoða forgangsröðun fjármuna til verkefna ofanflóðasjóðs og er gert ráð fyrir að hópurinn muni skila af sér tillögum til ríkisstjórnar fyrir 14. febrúar næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert