Bílvelta á Geirsgötu

Bílvelta varð á Geirsgötu í morgun.
Bílvelta varð á Geirsgötu í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bíll valt á Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur á áttunda tímanum í morgun. Tveir voru í bílnum og tókst þeim að komast úr bílnum með aðstoð slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. 

Ástand þeirra er betra en á horfðist í upphafi, samkvæmt upplýsingum frá Jóhanni Erni Ásgeirssyni, aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 

Verið er að meta hvort flytja eigi tvímenningana á sjúkrahús til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert