Keiino kemur fram í Laugardalshöll

Hljómsveitin Keiino vakti mikla lukku áhorfenda með lagi sínu Spirit …
Hljómsveitin Keiino vakti mikla lukku áhorfenda með lagi sínu Spirit in the Sky. Ljósmynd/Aðsend

Norski sönghópurinn Keiino, sem tók þátt fyrir hönd Noregs í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Ísrael á síðasta ári, kemur fram á úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í Laugardalshöll 29. febrúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. 

Lag Keiino, Spirit in the Sky, vakti mikla lukku í Tel Aviv á síðasta ári og hafnaði í 6. sæti þegar atkvæði dómnefnda og almennings voru talin saman, en hefði unnið í keppninni ef atkvæði almennings hefðu fengið að ráða.

Miðasala á Söngvakeppnina hefst á hádegi fimmtudaginn 23. janúar, en undankeppnirnar tvær fara fram í Háskólabíói 8. febrúar og 15. mars.

Röð keppenda á undanúrslitakvöldunum verður eftirfarandi:

Fyrri undanúrslit 8. febrúar kl. 19.30 – Háskólabíó:

Ævintýri
Flytjandi: Kid Isak Lag: Þormóður Eiríksson, Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson Texti: Þormóður Eiríksson og Kristinn Óli Haraldsson.

Elta þig
Flytjandi: Elísabet Lag: Elísabet Ormslev og Zoe Ruth Erwin Texti: Daði Freyr.

Augun þín
Flytjandi: Brynja Mary Lag: Brynja Mary Sverrisdóttir og Lasse Qvist Texti: Kristján Hreinsson.

Klukkan tifar
Flytjendur: Ísold og Helga Lag: Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson Texti: Stefán Hilmarsson.

Almyrkvi
Flytjandi: DIMMA Lag: DIMMA Texti: Ingó Geirdal

Seinni undanúrslit 15. febrúar kl. 19.30 – Háskólabíó:

Gagnamagnið
Flytjendur: Daði og Gagnamagnið Lag: Daði Freyr Texti: Daði Freyr.

Fellibylur
Flytjandi: Hildur Vala Lag: Hildur Vala og Jón Ólafsson Texti: Bragi Valdimar Skúlason.

Oculis Videre
Flytjandi: Iva Lag: Íva Marín Adrichem og Richard Cameron Texti: Íva Marín Adrichem og Richard Cameron.

Ekkó
Flytjandi: Nína Lag: Þórhallur Halldórsson og Sanna Martinez Texti: Þórhallur Halldórsson og Einar Bárðarson.

Dreyma
Flytjandi: Matti Matt Lag: Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson Texti: Matthías Matthíason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert