Bjarg byggir 58 íbúðir til viðbótar í Hraunbæ

Þessi mynd er af fyrirhuguðum fjölbýlishúsum Bjargs við Hraunbæ 153, …
Þessi mynd er af fyrirhuguðum fjölbýlishúsum Bjargs við Hraunbæ 153, sem þegar eru í byggingu.

Borgarráð hefur samþykkt að úthluta Bjargi, íbúðafélagi verkalýðshreyfingarinnar, lóð og byggingarrétt fyrir 58 íbúðir í þremur stakstæðum húsum við Hraunbæ 133 í Árbæ.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að samkvæmt úthlutuninni fái Bjarg heimild til að byggja þrjú stakstæð hús, tæpa 6.200 fermetra ofangjarðar, ásamt bílakjöllurum, en samanlagður byggingarréttur er um 8.400 fermetrar.

Er samþykkið háð því skilyrði að Bjarg fái úthlutað stofnframlagi frá ríkinu. 

Samtals greiðir Bjarg rúmar 309 milljónir króna fyrir byggingarrétt og gatnagerðargjöld, eða 45.000 krónur á fermetrann, sem er verð byggingarréttar fyrir húsnæðisfélög sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Hluta byggingarréttar verður skuldajafnað á móti 12% stofnframlagi Reykjavíkurborgar sem er veitt á grundvelli laga nr. 52/2016.

Bjarg skuldbindur sig til þess að framselja 20% íbúðanna, sem verða byggðar á lóðinni, á kostnaðarverði til Félagsbústaða. Félögin gera með sér sérstakan samning um kaupin.

Að sögn Björns Traustasonar, framkvæmdastjóra Bjargs, verður hafist handa við uppbyggingu á lóðinni með haustinu og verða íbúðirnar að öllum líkindum aðeins stærri en þær sem félagið hefur byggt til þessa og ætlaðar fjölskyldufólki þar sem tekjuviðmið leigutaka hjá Bjargi hafa hækkað með nýjum lögum. Breytingin veitir fleiri einstaklingum og fjölskyldum kost á hagkvæmu leiguhúsnæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert