Líkamsárás í verslun

mbl.is/Eggert

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í verslun í Kópavoginum en þar hafði einstaklingur orðið fyrir líkamsárás. Ekki vitað um meiðsli hins slasaða og ekki vitað hver gerandinn er, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í íþróttahúsi í Vogahverfi í morgun en þar hafði starfsmaður dottið og slasast. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var um minni háttar slys að ræða. 

Tilkynnt var til lögreglunnar um innbrot í Austurbænum (hverfi 104) í morgun og einnig þjófnað úr bifreið í Vesturbænum (hverfi 107). 

Lögreglunni barst ábending um illa staðsetta mannlausa bifreið í Hafnarfirðinum í morgun en tilkynnandi taldi bifreiðina skapa mikla hættu fyrir umferð sem færi fram hjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert