Vænta niðurstöðu krufningar á morgun

Flugvélarflakið á Sólheimasandi er vinsæll viðkomustaður ferðamanna.
Flugvélarflakið á Sólheimasandi er vinsæll viðkomustaður ferðamanna. mbl.is/Jónas Erlendsson

Lögreglan á Suðurlandi býst við bráðabirgðaniðurstöðum úr krufningu á kínversku ferðamönnunum sem fundust látnir á Sólheimasandi í síðustu viku á morgun.

Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.

Karl og kona, kínverskir ríkisborgarar á þrítugsaldri, fundust látin á Sólheimasandi á fimmtudaginn í síðustu viku. Tilkynnt var um að lík konu hefði fundist skammt frá göngustíg að flugvélarflakinu á Sólheimasandi og ákvað lögregla í kjölfarið að efna til leitar á svæðinu. Við leitina fannst lík karlsins í um 150 metra fjarlægð frá líki konunnar.

Talið er að fólkið hafi orðið úti, en afar slæmt veður var á svæðinu í síðustu viku. 

Aðstandendur fólksins eru komnir til landsins og til stóð að ræða við þá í gær til að varpa frekara ljósi á atvik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert