Björk hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör

Björk Þorgrímsdóttir ásamt bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni.
Björk Þorgrímsdóttir ásamt bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni. Ljósmynd/Anton Brink.

Björk Þorgrímsdóttir hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör sem var afhentur í 18. sinn við hátíðlega athöfn í Salnum á afmælisdegi skáldsins.

Alls bárust 232 ljóð í keppnina en jafnframt voru úrslit í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs kunngjörð en 153 ljóð bárust frá grunnskólabörnum, að því er segir í tilkynningu. 

Dómnefnd skipuðu Bjarni Bjarnason formaður, Ásta Fanney Sigurðardóttir og Magnús Sigurðsson.

Í öðru sæti var Freyja Þórsdóttir fyrir ljóðið Skilningur og þriðja sætið hlaut Elísabet Kristín Jökulsdóttir fyrir ljóðið Að elska Vestfirðing.

Sérstaka viðurkenningu hlutu auk þess ljóðskáldin Björk Þorgrímsdóttir, Draumey Aradóttir, Haukur Þorgeirsson og Tómas Ævar Ólafsson.

Hlutskarpastur í grunnskólakeppninni var Ingimar Örn Hammer Haraldsson fyrir ljóðið Svarthol en hann er nemandi í 7. bekk Álfhólsskóla. Í öðru sæti varð nemandi í 5. bekk Salaskóla, Arnór Snær Hauksson, fyrir ljóðið Grimma tréð og í þriðja sæti Steinunn María Gunnarsdóttir og Ragnheiður Jónasdóttir í 7. bekk Kársnesskóla fyrir ljóðið Draumaland.

Þá hlutu sjö nemendur sérstaka viðurkenningu en þau eru: Benedikt Einarsson í 10. bekk Vatnsendaskóla, Helgi Geirsson í 7. bekk Álfhólsskóla, Bára Margrét Guðjónsdóttir í 5. bekk Salaskóla, Kristín Elka Svansdóttir í 5. bekk Hörðuvallaskóla, Hrannar Ben Ólafsson í 5. bekk Hörðuvallaskóla og Ingunn Jóna Valtýsdóttir í 10. bekk Lindaskóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert