Koma upp dagsetri fyrir heimilislausa

Hópurinn lagði til að í fyrstu yrði opnað dagsetur fyrir …
Hópurinn lagði til að í fyrstu yrði opnað dagsetur fyrir heimilislausar konur og yrði það opið alla daga ársins frá 11-17. mbl.is/​Hari

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, skipaði fyrir nokkru starfshóp sem kanna skyldi möguleika á því að kirkjan kæmi á fót dagsþjónustu fyrir fólk sem er á götunni. 

Starfshópurinn skilaði tillögum til biskups ásamt kostnaðaráætlun. Hópurinn lagði til að í fyrstu yrði opnað dagsetur fyrir heimilislausar konur og yrði það opið alla daga ársins frá 11-17.

Boðið yrði upp á heita máltíð í hádeginu og kaffihressingu síðdegis, að því er segir á vef þjóðkirkjunnar.

Þar segir jafnframt, að kirkjuráð hafi tekið málið fyrir og samþykkti á fundi sínum 11. desember að koma skyldi upp dagsetri. Samþykkt var að vinna áfram með málið og liggur fjárveiting til verkefnisins fyrir á fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar fyrir árið 2020.

Tekið er fram að málið er enn í vinnslu hjá starfshópnum.

Hópinn skipa þau Ragnheiður Sverrisdóttir djákni, sr. Hjalti Jón Sverrisson og Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Sr. Hreinn S. Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, er hópnum til ráðuneytis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert