Leggja aukna áherslu á listir og skapandi greinar

Nigel Adams, ráðherra skapandi greina, fjölmiðla og íþrótta, í Bretlandi …
Nigel Adams, ráðherra skapandi greina, fjölmiðla og íþrótta, í Bretlandi og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði með Nigel Adams, ráðherra skapandi greina, fjölmiðla og íþrótta, í London í gær. Markmið fundarins var að ræða stefnu og árangur Bretlands á sviði skapandi greina en íslensk stjórnvöld hyggjast leggja aukna áherslu á þær. Umfang greinanna hefur vaxið um 50% frá árinu 2010 í Bretlandi, hlutdeild þeirra er nú um 5,5% af landsframleiðslu og yfir 2 milljónir manna starfa á þeim vettvangi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.

„Það er virkilega áhugavert að kynna sér það fyrirkomulag sem bresk stjórnvöld hafa komið á til að efla listir og skapandi greinar, til dæmis þegar kemur að skattalegu umhverfi og stefnumótun til framtíðar. Skapandi greinar hafa, líkt og á Íslandi, verið í mikilli sókn í Bretlandi undanfarinn áratug. Bresk stjórnvöld eru mjög meðvituð um mikilvægi skapandi greina, og hugvits- og tæknigreina, fyrir hagkerfi framtíðarinnar og eru áhugasöm um aukið samstarf við okkur á því sviði,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra í fréttatilkynningu.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að efla listir og skapandi greinar sem vaxandi atvinnuveg hér á landi. Málefni þeirra snerta með beinum hætti sex ráðuneyti en mennta- og menningarmálaráðherra leiðir þau innan ríkisstjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert