Nýtt sníkjudýr í innfluttum hundi

Hundurinn var fluttur inn frá Spáni árið 2018. Mynd úr …
Hundurinn var fluttur inn frá Spáni árið 2018. Mynd úr safni. AFP

Sníkjudýrið leishmania greindist nýverið í fyrsta skipti í hundi hér á landi, en hundurinn var fluttur til Íslands árið 2018 frá Spáni. Helsta smitleið leishmaníu er með sandflugum en smitið getur einnig borist milli hunda við pörun, frá tíkum til hvolpa og við bit. Smitið berst ekki með snertingu. Matvælastofnun hefur gefið fyrirmæli um pörunarbann og nánari rannsóknir, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni.

Hundurinn sem um ræðir hefur verið notaður á nokkrar tíkur við ræktun og undan honum er komið eitt got. Til að hindra smitdreifingu hefur Matvælastofnun gefið fyrirmæli um að hundurinn verði ekki paraður við fleiri tíkur. Jafnframt eru nánari rannsóknir í undirbúningi, m.a. til að kanna hvort tíkurnar hafi smitast.

Þótt Leishmania hafi ekki áður greinst í hundi eða öðrum dýrum hér á landi hefur hún greinst í fólki sem smitast hefur erlendis. Sníkjudýrið er frumdýr sem berst oftast milli einstaklinga, bæði dýra og manna, með sérstökum tegundum af sandflugum sem lifa ekki hér á landi.

Einkenni sjúkdómsins í hundum eru breytileg, allt frá staðbundnum sýkingum í húð yfir í sýkingar í flestum innri líffærum, sem geta valdið dauða. Meðhöndlun er erfið og ólíklegt að með henni náist að ráða niðurlögum sýkingarinnar að fullu en meðhöndlunin getur hægt á sjúkdóminum og haldið niðri einkennum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert