Píeta fær 15 milljóna framlag

Frá undirritun samningsins.
Frá undirritun samningsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Píeta-samtakanna, undirrituðu nýverið samkomulag um 15 milljóna króna framlag til rekstrar samtakanna.

Markmiðið er að styrkja samtökin til að standa straum af kostnaði við starfsemina sem felst í því að sinna forvarnastarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða auk þess að styðja við aðstandendur, að því er kemur fram í tilkynningu.

Þakklát fyrir stuðninginn

„Þessi styrkur gerir okkur kleift að halda áfram starfsemi okkar sem við teljum að sé búin að sanna sig. Þörfin er mikil og eftirspurnin eykst með hverri vikunni. Fyrir svona ung samtök skiptir stuðningur ykkar öllu máli og fyrir það erum við afar þakklát“ sagði Kristín við undirritunina.

Hefur gefið góða raun

„Það er afar mikilvægt að þjónusta sem þessi sé í boði hérlendis og að þeir sem þurfa á henni að halda geti gengið að henni á vísum stað. Starfsemi Píeta-samtakanna hefur gefið góða raun og er ánægjulegt að geta tryggt þeim fjármagn til þess að halda starfinu áfram,“ sagði Ásmundur Einar.

Píeta-samtökin hófu starfsemi sína vorið 2018 og eru staðsett að Baldursgötu 7 í Reykjavík. Alls fengu 336 einstaklingar viðtöl hjá samtökunum á síðastliðnu ári.

Til samtakanna geta leitað einstaklingar í vanda og er þjónusta samtakanna gjaldfrjáls. Gefinn er kostur á allt að 15 viðtölum, en þörfin er metin í hverju tilviki fyrir sig. Enn fremur geta aðstandendur fengið allt að 5 viðtöl. Allar viðtalsmeðferðir hjá Píeta-samtökunum eru veittar af fagfólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert