Veginum lokað vegna snjóflóðahættu

Súðavíkurhlíð.
Súðavíkurhlíð. mbl.is/Sigurður Bogi

Vegna snjóflóðahættu hefur verið ákveðið að loka leiðinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur í nótt, frá miðnætti. Athugað verður með opnun vegarins snemma í fyrramálið.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum.

Víðast hvar er snjóþekja á vegum en varað er við hvassviðri og versnandi ferðaveðri á Vestfjörðum, að því er segir á vef Vegagerðarinnar.

Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði. mbl.is/Hallur Már
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert