Ekkert flogið og vegir lokaðir

Vonandi hafa þessir ferðamenn ekki átt bókað flug frá Íslandi …
Vonandi hafa þessir ferðamenn ekki átt bókað flug frá Íslandi í morgun en ekkert hefur verið flogið frá landinu í morgun vegna vonskuveðurs. mbl.is/Árni Sæberg

Suðvestanhvassviðri eða -stormur og éljagangur á vestanverðu landinu í dag og eru gular viðvaranir víða í gildi, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Innanlandsflug sem og millilandaflug liggur niðri og vegna veðurs og ófærðar hefur Strætó þurft að fella niður ferðir frá Reykjavík út á land.

Vetrarfærð er í flestum landshlutum og víða slæmt ferðaveður um vestan- og norðvestanvert landið. Á Suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir, mjög hvasst og gengur á með mjög dimmum éljum. Óvissustig er í gildi á Mosfellsheiði, Hellisheiði, Þrengslum og Lyngdalsheiði og geta vegirnir lokað fyrirvaralaust.

Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir og víða éljagangur. Þæfingsfærð er á Svínadal. Snjóþekja eða þæfingsfærð og slæmt ferðaveður er á Vestfjörðum en vegurinn um Þröskulda er lokaður og beðið með mokstur vegna veðurs. Hið sama gildir um Klettsháls, Steingrímsfjarðarheiði og Hálfdán. Óvissustig er í Súðavíkurhlíð og vegurinn lokaður

Víða er mjög hvasst á Norðurlandi og leiðinlegt ferðaveður. Leiðir um Vatnsskarð, Þverárfjall og Öxnadalsheiði eru lokaðar vegna veðurs. Slæmt ferðaveður er milli Akureyrar og Húsavíkur og Akureyrar og Mývatns, mjög hvasst og blint. Einnig mjög blint á Vopnafjarðarheiði.

Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar verið hvasst í allan dag og mjög blint í hryðjum. Skafrenningur er á fjallvegum. Fer að ganga niður eftir klukkan 21 í kvöld og skánar mjög í nótt.  

Upplýsingar frá Strætó

Leið 51: Reykjavík-Höfn

Allar ferðir falla niður þar til annað verður tilkynnt.

Leið 52: Reykjavík-Landeyjahöfn

Allar ferðir falla niður þar til annað verður tilkynnt.

Leið 57: Reykjavík-Akureyri

Allar ferðir falla niður þar til annað verður tilkynnt.

Leið 78: Akureyri-Siglufjörður

Allar ferðir falla niður þar til annað verður tilkynnt.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert