Höfnuðu framlengingu fyrri samnings

„Það var ákvörðun ofangreindrar samninganefndar hjúkrunarheimilanna að hafna tillögu SÍ …
„Það var ákvörðun ofangreindrar samninganefndar hjúkrunarheimilanna að hafna tillögu SÍ um framlengingu eldri rammasamnings.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samninganefnd Sjúkratrygginga Íslands lagði til í upphafi viðræðna við samninganefnd Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Samtaka íslenskra sveitarfélaga um rammasamning um þjónustu hjúkrunarheimila að samningurinn sem rann út í lok árs 2018 yrði framlengdur óbreyttur um tvö ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum (SÍ) vegna umfjöllunar um nýjan rammasamning sem skrifað var undir í lok síðasta árs. Þar segir að framlengingu samningsins hafi verið hafnað af samninganefndum SVF og sveitarfélaga, en þau hafa sagt nýjan samning afturför frá þeim fyrri.

„Iðulega kemur upp sú umræða að fjárveitingar Alþingis til heilbrigðisþjónustu almennt og til einstakra flokka hennar séu ekki nægilegar, m.a. vegna þess að þarfir fyrir þjónustu fari sívaxandi. Gildir það bæði um opinberar stofnanir og aðra aðila sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt samningum við SÍ. Mikilvægur hluti samningaviðræðna SÍ við viðsemjendur sína er því að finna leiðir til að veita sem mesta og besta þjónustu fyrir það fjármagn sem Alþingi hefur ákveðið að veita til hennar,“ segir í tilkynningu SÍ.

Í þeim tilgangi hafi SÍ lagt til að nýr samningur við hjúkrunarheimili fæli í sér að á samningstímanum myndu aðilar vinna saman að því að greina hvernig mætti styrkja rekstrargrunn hjúkrunarheimila.

Þá hafi SÍ haft frumkvæði að því að samið var um að greina kostnað við hjálpartæki sem íbúar heimilanna þurfa á að halda og leitað leiða til að fjármagna þann kostnað sérstaklega með það fyrir augum að styrkja rekstrargrunn hjúkrunarheimilanna.

Það var ákvörðun ofangreindrar samninganefndar hjúkrunarheimilanna að hafna tillögu SÍ um framlengingu eldri rammasamnings. Samninganefndin, þar á meðal SFV, var full upplýst um efni nýju samninganna og kröfur um veitingu þjónustu samkvæmt þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert