Kristín Heba ráðin framkvæmdastjóri Vörðu

Kristín Heba Gísladóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vörðu …
Kristín Heba Gísladóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Ljósmynd/Aðsend

Kristín Heba Gísladóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Kristín Heba er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistarapróf í auðlindafræði frá sama skóla.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að undanfarin ár hafi Kristín starfað sem framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar en þar sá hún um daglegan rekstur, samskipti við stjórnvöld og kjörna fulltrúa, stjórnun verkefna auk þess að vera talsmaður AkureyrarAkademíunnar út á við. 

Auk þess hefur Kristín starfað sem stundakennari við Háskólann á Akureyri frá árinu 2012.

Alþýðusamband Íslands og BRSB stofnaðu Vörðu — rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins í október 2019 til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum.

„Ég hlakka til að hefja störf, kynnast fólkinu í hreyfingunni og takast á við öll þau spennandi verkefni sem fram undan eru hjá Vörðu með það að markmiði að bæta kjör og lífsgæði launafólks,“ er haft eftir Kristínu um nýja starfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert