SGS vísar kjaradeilu til sáttasemjara

Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS.
Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS. mbl.is/​Hari

Viðræðunefnd Starfsgreinasambands Íslands samþykkti á fundi í dag, fyrir hönd 18 aðildarfélaga, að vísa kjaradeilunni, vegna kjarasamninga við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, til ríkissáttasemjara.

Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi af samningafundi í gær og ganginum í viðræðum undanfarna mánuði, en kjarasamingurinn rann út 31. mars 2019, að því er SGS segir í tilkynningu. 

„Jafnframt var farið fram á það við sáttasemjara að hann boði til fundar eins skjótt og auðið er, enda algerlega óástættanlegt að launafólk bíði mánuðum saman eftir því að sest sé að samningaborðinu af alvöru,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert