Unglingar veittust að húsráðanda

Tilkynnt var um líkamsárás og eignaspjöll í Austurbænum (hverfi 105) skömmu fyrir klukkan 1 í nótt. Þrír til fjórir ungir strákar bönkuðu upp á hjá íbúa í kjallara í hverfinu og þegar hann kom til dyra veittust þeir að honum og við það brotnaði rúða. Strákarnir hlupu á brott og hafa væntanlega ekki náðst. 

Á fimmta tímanum í nótt var tilkynnt um ofurölvi mann í miðborginni (hverfi 101) til lögreglunnar. Maðurinn, sem er erlendur, gat ekki gert grein fyrir sér eða tjáð sig um hvar hann byggi og var hann sökum veðurs vistaður í fangageymslu lögreglu meðan hann sefur úr sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert