Mistök í svari um launakjör hjúkrunarfræðinga

Ljósmynd/Aðsend

Heilbrigðisráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að mistök hafi verið gerð í svari við skriflegri fyrirspurn varaþingmannsins Maríu Hjálmarsdóttur um launamun hjúkrunarfræðinga eftir því á hvaða sjúkrahúsi þeir starfa.

„Mistök urðu við vinnslu svarsins en það var byggt á röngum forsendum og verður unnið að nýju. Tölurnar í svarinu voru settar fram með launatengdum gjöldum. Slík framsetning gefur ranga mynd af meðalgrunnlaunum og meðalheildarlaunum hjúkrunarfræðinga. Við upplýsingagjöf um laun og kjör eru launatengd gjöld almennt ekki höfð með og tryggt verður að sambærileg mistök gerist ekki aftur. Ráðuneytið biðst velvirðingar á mistökunum,“ segir enn fremur í yfirlýsingu ráðuneytisins.

Þá segir að nýtt svar verði sent Alþingi síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert