„Það er ljóst hvar ábyrgðin liggur“

Bæjarfulltrúar Viðreisnar segja að oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík sé nær …
Bæjarfulltrúar Viðreisnar segja að oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík sé nær að hafa samband við sína flokksfélaga til að viðra athugasemdir sínar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki vikið sér undan ábyrgð á þeim alvarlegu mistökum sem gerð voru í tengslum við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu, þar sem hann á nánast alla fulltrúa eigendavettvangs og helming stjórnar Sorpu.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu bæjarfulltrúa Viðreisnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að bæjarfulltrúar Viðreisnar hafi á haustmánuðum lagt til að skipuð yrði neyðarstjórn sem færi með stjórn Sorpu eftir að í ljós kom að kostmaður við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvarinnar var verulega vanáætlaður. „Í nýbirtri skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkur birtist áfellisdómur yfir stjórnun Sorpu sem staðfestir vandann sem við greindum þá.“

„Þó svo að upplýsingagjöf til stjórnar hafi ekki verið fullnægjandi og framkvæmdastjóri beri þar mikla ábyrgð, þá kemur einnig fram í skýrslunni að stjórn hafi ekki sinnt eftirlitshlutverki sínu og að stjórnarformaður og stjórnarmenn hefðu átt að hafa frumkvæði að því að afla upplýsinga. Í stjórn Sorpu sitja þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks, tveir fulltrúar Framsóknarflokks og einn fulltrúi Vinstri grænna.“

Þá komi fram í skýrslu innri endurskoðnar gagnrýni á skort á eftirliti stýrihóps eigenda, en eigendavettvangi sé skipaður fimm bæjarstjórum Sjálfstæðisflokks og einum borgarstjóra Samfylkingar.

„Það er ljóst hvar ábyrgðin liggur,“ segir í yfirlýsingu bæjarfulltrúa Viðreisnar. Hvorki Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur né Vinstri græn geti vikið sér undan ábyrgð í málinu. 

Oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík sé nær að hafa samband við sína flokksfélaga til að viðra athugasemdir sínar, enda hafi þeir frá árinu 2013 skipað annaðhvort helming stjónar Sorpu eða meirihluta, rétt eins og þeir séu með fimm af sex fulltrúum á eigendavettvangi Sorpu.

„Bæjarfulltrúar Viðreisnar taka undir með niðurstöðu Innri endurskoðunar um að lög um skipan opinberra framkvæmda eigi ætíð að vera höfð til hliðsjónar við stórar framkvæmdir á vegum byggðasamlags í eigu sveitarfélaga. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hljóta að þurfa að bregðast við þessari skýrslu með nýjum og bættum vinnubrögðum fyrirtækja í þeirra eigu sem byggja á gagnsæi og tryggja almannahagsmuni íbúanna.“

Undir yfirlýsinguna skrifa Einar Þorvarðarson, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi, Jón Ingi Hákonarson, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Hafnarfirði, Karl Pétur Jónsson, bæjarfulltrúi Viðreisnar á Seltjarnarnesi, Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ, og Valdimar Birgisson, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Mosfellsbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert